Já ekkert hefur verið bloggað í dágóðan tíma og er þetta senilega síðasta blogg um stund þar sem ég nenni eiginlega ekki að blogga lengur. Hér á eftir mun koma ýmislegt sem ég hef verið að pæla og hugsa og skoðar á ýmsum málefnum.
- Foleldrar / Foreldrar í dag eru aumingjar. Maður heyrir um það aftur og aftur að kalla hafi þurft til lögreglu til að stoppa einhvern bilaðan ungling sem ekki fékk að vera í tölvunni. Hefði ekki verið málið að taka tölvuna úr sambandi um leið og unglingurinn fór að láta eins og fífl í staðin fyrir að hringja á lögguna þegar hann fór að láta eins og brjálæðingur? Pæling
- Krakkar – Unglingar / Ungt fólk í dag ber enga virðingu fyrir sínum eldri, foreldri segir „komdu heim“, krakkinn segir „fuck off“. Þegar ég var krakki datt mér ekki einu sinni í hug að segja eitthvað svona við foreldra mína, ég reist við þau, alveg heiftarlega stundum, en fór aldrei yfir þetta strik nema einu sinni, það var við mömmu mína og hún fór að gráta, leið svo illa yfir því að ég gerði það aldrei aftur. Það má kanski kenna fyrri pælingu um afhverju krakkar eru orðnir svona mikil fífl, er málið að taka upp rasskellinn eða?
- Law and order / Lög og regla í landinu...jújú, við erum með lög og reglur, að sjálfsögðu, en hvað er málið með refsingarnar. Var að lesa í Mogganum um helgina um mann sem hefði nauðgað konu. Héraðsdómur taldi að ekki væri hægt að sanna að munnmök hefðu átt sér stað og maðurinn fékk 4 ár og þurfti að borga fórnarlambinu 1,2 milljónir í miska. Svo kemur í ljós að hæstiréttur taldi að hægt væri að sanna að munnmök hefðu átt sér stað og allt í einu fór refsingin úr fjórum árum í þrjú og bæturnar úr 1,2 millum í eina. Hæstiréttur semsagt bættir við sökina en dró úr refsingunni????
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1291525
- Vegakerfið / Fólk vælir dag eftir dag yfir því að vegakerfi Íslands sé sprungið, þetta sama fólk ætti að prufa að vera á bíl í London. Any way, fólk vælir yfir þessu og bíður eftir lausn, en ég meina, meira að segja ég get alveg sagt mér það sjálfur að það er ekkert hægt að malbika bara endalaust, það er ekkert endalaust pláss fyrir vegina, húsin verða jú að vera einhverstaðar. Svo er annað, þetta fólk vælir og vælir og svo fer þetta sama fólk og sest út í bíl og bætir í umferðina, ef þetta er svona hræðilegt, seljið þá bílinn og kaupið hjól. Sagði einmitt við pabba um daginn að það ætti bara að banna hjónum að eiga 2 bíla. Hann kom með þau rök að þau væru að fara í sitt hvora áttina á morgnana. Ok, ég spurði hann einfaldlega á móti að ef hjónum yrði bannað að vera á tveimur bílum myndi umferð skána allsvakalega og því tæki líklegast styttri tíma fyrir hann að keyra mömmu fyrst í vinnuna og mæta svo sjálfur heldur en að þau sætu bæði föst í umferð í guð má vita hvað langan tíma.
- Of fljót vinnubrögð / Var að hlusta á konu í útvarpinu í gær sem hafði flutt inn í nýja íbúð í blokk. Fljótlega tók hún eftir því að leki var í íbúðinni. Að sjálfsögðu vildi hún ekki sætta sig við þetta og hringdi í fólk sem átti að redda þessu. Ekkert mál, hún var færð í aðra eins íbúð í blokkinni. Fljótlega tók hún eftir því að þar var líka leki. Mörgum vikum seinna er enn ekki búið að gera við þetta og hún ekki búin að fá staðfestingu á að það verði gert. Eru verktakar að flýta sér svo mikið við að henda upp húsum hér og það að það er ekki gert almennilega. Svo var víst einhver blokk í smáranum sem var með svo lélegan grunn að hún fór allt í einu að síga öðru megin. Í íbúð frænku minnar er ekki hægt að opna eina hurð í íbúðinni án þess að hún rekist í gólfið, og þetta er blokk í nýja hverfinu á vatnsenda, er ekki málið að slaka aðeins á og gera hlutina frekar almennilega?
- Gay people / Mér finst ekkert að því að samkynhneigðir gifti sig. Þá er ég að meina í kirkju fyrir framan guð og allt það. Meina...af hverju ekki. Ef gæjanum á efri hæðinni er svona rosalega illa við þetta allt saman þá skellir han bara einni eldingu í giftingarhringinn and then we will know for shure. Áfram on the subject, mér finst að hommar ættu að meiga ættleiða...og lessur auðvitað líka ef þær geta ekki orðið óléttar. Held að fólk hafi mestar áhyggjur af því að krakkinn verði lagður í einelti eða eitthvað fyrir að eiga tvo pabba eða tvær mömmur ,en hvernig getur það bara ákveðið að það mun fara í rugl?
- Pæling Sverris / Sverrir spurði hópinn í dag hvað við myndum gera ef zombie árás yrði á Íslandi, semsagt að allir myndu breytast í zombie nema einhver lítill vinahópur. Hann spurði um val á vopni, farartæki og safehouse. Sjálfur sagði hann að hann myndi nota sverð því að það entist betur en byssa því það þyrfti ekki að hlaða svarð. Hann valdi fjórhjól vegna þess að það er meira visual range og minni líkur á að það velti frekar en t.d. mótorhjól og hann getur slept höndum af stýri án þess að hugsa of mikið um jafnvægið og einbeitt sér að því að drepa Zombie. Svo sagði hann að han myndi fara annað hvort í Perluna, því hún stendur hátt og þar eru sjónaukar og nóg af mat, eða Hallgrímskirkju vegna þess hve langt sést frá turninum og það eru tvær útgönguleiðir, stiginn eða lyftan og ef maður mætir zombie í stiganum er hann svo brattur að það þarf lítið til að hrinda honum niður, endilega komið með ykkar skoðun í comment.
-Ferðalög / Er að spá í að fara til útlanda um páskana, með fólkinu, veit bara ekki hvert. En það nú ekkert nýtt að allir eru til í að fara en enginn nennir að standa í því að plana eða velja stað...reyndar soldið langt í þetta en ég hef á tilfinningunni eða ferlið verði svipað og áður.
- Auglýsing ársins er að mínu mati nýjasta kók auglýsingin...hún er bara góð, eins og þær eru allflestar, nema reyndar kók zero auglýsingin...var ekki að fíla hana.
- Ísland vs. Útlönd / Oftar en ekki situr maður heima og pælir „hvað ætti ég að gera í kvöld“ og oftar en ekki hjá mér endar það með pælingunni að flytja af þessum klaka. Ástæðan fyrir því er sú að ég hef búið í útlöndum, og það var svaka gaman, málið er samt að þá var ég á aldrinum 4-10 ára...þá gat maður farið út og bara leikið sér, farið í sandkassann með nokkra bíla og hafa það bara rosalega gaman. Kanski minningin sé ástæðan fyrir því að ég tengi útlönd við gaman. En ef maður pælir í því þá er þetta bara bull, kanski í byrjun væri gaman, skoða hitt og þetta og kynnast nýju fólki og sona, but then...allt verður eins...eða það held ég allavega
- Síðasti diskur keyptur / Korn – Untitled. Hann er ágætur, ekki nálægt gamla góða KoRn en ég held að mér finnist hann betri í heildina en sá síðasti
Jæja, ég held að þetta blogg sé nú meira en nógu langt til að vera síðasta blogg færslan í bili...later people and pease out
Sveppi...over and out